
Um okkur
Á – grafísk hönnun er lítið, metnaðarfullt og hresst grafískt hönnunarstúdíó þar sem fáir (reyndar bara tveir) starfsmenn finnst fátt skemmtilegra en að sitja með kryppu fyrir framan tölvu sem í daglegu tali hér kallast “rækjustellingin”.
Okkur finnst gaman að takast á við öll svið grafískar hönnunar og ekkert verkefni er of lítið eða of stórt, hvort sem það er lítill bæklingur fyrir háskólanema eða auglýsingaherferð fyrir fyrirtæki.
Endilega hafðu samband í netfangið agrafik@agrafik.is eða sendu skilaboð hér fyrir neðan.

Reynir Albert Þórólfsson
Ef Reynir sér ljósritunarvél í mílu fjarlægð má fastlega búast við því að hann stingi höfðinu þar inn eins og sést glögglega á meðfylgjandi mynd netfang: reynir@agrafik.is

Sonja Haraldsdóttir
Sonja drakk einu sinni ekki kaffi en til allra hamingju hefur hún fundið ljósið og finnst nú fátt betra en að fá sér rjúkandi bolla á morgnana, daginn og oft á kvöldin líka… netfang: sonja@agrafik.is